Performance vínglös: Shiraz/Syrah
Blýlaus kristall
6.390kr. – 12.780kr.
Stílhrein og falleg Shiraz/Syrah vínglös úr Performance línunni frá RIEDEL. Vínglösin eru fullkomin til að koma jafnvægi á ávaxtapiparinn og kryddilminn sem finnast oft í meðalfylltu rauðvíni. Vínglösin eru sérstaklega hönnuð til að ná fram jarðnesku tónum vínsins og undirstrika hið langa og bragðmikla eftirbragð.
Performance vínglösin eru þau fyrstu sem innihalda rifflur á innanverðu glasinu. Þessi nýja tækni gefur ekki aðeins skemmtilegt útlit á glasið heldur eykur einnig yfirborðið sem einfaldar víninu að opna sig. Með því undirstrikar vínglasið ilm og blæbrigði vínþrúgunnar og sýnir að fullu allt sem vínið hefur uppá að bjóða.
– Þolir uppþvottavél
– Vélblásinn blýlaus kristall
– Hæð: 24,5 cm
Lýsing
Riedel Crystal voru fyrst að uppgötva að bragð og ilmur drykkja yrði fyrir áhrifum af lögun drykkjarílátsins. Riedel hefur síðan þá verið með byltingarkenndar hannanir sem bæta upplifun neytenda á víni og eru í dag orðnir einn af fremstu vínglasaframleiðendum í heimi.
Riedel var stofnað árið 1756 og hefur fjölskyldan síðan þá stöðugt reynt að fullkomna hönnunina á glösunum. Performance línan kom út árið 2018 og byggir á nokkur hundruð ára þróun.
Allar vörur frá Performance línunni eru úr vélblásnum blýlausum kristal.
Hér má finna upplýsingablað fyrir Performance línuna frá Riedel Crystal á PDF sniði.
Þér gæti einnig líkað við…
-
- Uppselt
- Riedel
- Vínglös: New World Pinot
- 4.195kr. – 8.390kr.
- Veldu kosti
-
-
- Zalto
- Bordeaux vínglös
- 15.181kr. – 43.146kr.
- Veldu kosti