Kristalglas: 2 x 200ml

Handblásinn blýlaus kristall

15.980kr.

Bleik kristalglös eru svo sannarlega íkonísk í dag. Hágæða og vandað kristalglas úr Pink línunni frá tékkneska fyrirtækinu Rückl. Hvert og eitt glas er handblásið og handskorið af útskurðar- og glerlistamönnum.

Pink vörulínan eftir hönnuðinn Rony Plesl er minimalísk en á sama tíma auðþekkjanleg hönnun sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim.

Efni: blýlaus kristall
200ml

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , ,
Vörumerki: Rückl

Lýsing

Glerverksmiðja Rückl fjölskyldunnar var stofnuð árið 1866 en glerbræðsluaðferð hennar hefur farið á milli kynslóða í 300 ár. Rückl setur hefðbundnu tékknesku glerhandverkin á hærri stall þar sem fyrirtækið sameinar fágaða fegurð kristalsins með einstakri hönnun og smáatriðum.

Hönnuðurinn Rony Plesl kom fram með Pink vörulínuna sem felur í sér hágæða handunnin kristalglös í fallegum bleikum lit með handskornu mynstri. Með vörulínunni sinni skapaði Plesl minimalíska en á sama tíma auðþekkjanlega hönnun sem hefur notið mikilla vinsælda um heim allann.

Tugir glerlistamanna koma að framleiðslu glasanna í glerverksmiðju Rückl. Framleiðsluferlið felur m.a. í sér að hvert og eitt verk er handblásið í viðarform og er handskorið með mikilli nákvæmni og vandfærni. 

Hér má finna upplýsingablað um Rückl á PDF sniði.

Þér gæti einnig líkað við…