Pluto Bekkur
Látlaus, einfaldur og praktískur
71.990kr. – 164.990kr.
Pluto – ekki lengur pláneta, en ennþá stjarna á himni. Bekkurinn er látlaus, einfaldur og praktískur. Falleg hönnun sem passar vel inná nútíma heimili.
Fjölbreytt efnisval, svo sem flauel, leður, ull, bómullarefni eða slitsterkt “facility” efni. Hægt er að velja um marga liti bæði fyrir áklæði og lappir, og para saman að vild.
Magnafsláttur af flutningskostnaði: Ef keypt eru þrjú eða fleiri húsgögn frá Sternzeit þá er veittur 10% afsláttur. Afslátturinn virkjast sjálfkrafa í netverslun.
Afhending:
- Þessi vara er eingöngu í boði sem sérpöntun. Afhendingartími er almennt 3-4 mánuðir.
- Þó er hægt að fá vörurnar með flugfrakt gegn aukagjaldi.
- Sendum ekki húsgögn, en getum aðstoðað með að bóka hjá sendingaraðila ef óskast.
Description
Bekkurinn kemur í heilu lagi og einungis þarf að skrúfa lappirnar á, verkfæri og leiðbeiningar fylgja.
Samsetning tekur einungis örfáar mínútur.
Lappir: Lakkaður beykiviður, eða eik
Áklæði: Venjulegt (bómullaráferð), facility line (slitsterkt), leður, leður premium, flauel, flauel premium eða ullaráklæði.
Stærð: Hæð: 39cm, breidd: 47 cm, lengd: 97cm.
Ábyrgð: 5 ár
Umhverfisvottanir: Öktotex100, REACH