Diskur miðstærð: Hvítur
Handunninn 100% náttúrulegur steinn
7.990kr. 5.593kr.
Hvítur forréttadiskur frá Stonemade. Diskurinn er handunninn og gróflega slípaður úr 100% náttúrulegum marmara sem sóttur var af fagmönnum til nágrennis Himalaya fjallanna.
Æðar og smærri ófullkomleiki steinsins er hluti af eðli og sögu efnisins, eins konar fullkomnun ófullkomleikans. Þetta gefur vörunum hrátt yfirbragð og undirstrikar duttlunga í hönnun efniviðarins af náttúrunnar hendi.
Stærð: 20x20x2cm
Þyngd: 600g
Lýsing
Stonemade var stofnað af hinni austurrísku Katharina Mörz-Heissenberger. Katharina hannar og framleiðir diska og skálar úr marmara og kalksteini. Stonemade er unnið úr 100% náttúrulegum efnivið og af þeirri ástæðu var ákveðið að notast ekki við neins konar efnafræðilegt ferli við framleiðsluna. Vörurnar hafa því aldrei verið glerjaðar eða efniviðnum lokað á neinn hátt.
Meðhöndlun
- Stonemade vörurnar þola uppþvottavélar
- Framleiðendur mæla frekar með handþvotti í heitu vatni þar sem efniviðurinn er misharður og gæti verið viðkvæmur fyrir miklum ágangi uppþvottavéla til lengri tíma.
- Engin þörf er á sápu eða öðrum hreinsiefnum.
- Af og til er gott að bera nokkra dropa af ólífuolíu á vörurnar og leyfa olíunni að síast inn í efniviðinn. Á þann hátt skapast gljái sem ljær vörunum mýkri áferð og tryggir að vörurnar verða fallegri með hverri notkun.
- Með daglegri notkun vörunnar myndast með tímanum skán á yfirborð hennar og virkar sem varanleg vörn gegn óhreinindum.
Þér gæti einnig líkað við…
-
- 30%
- Stonemade
- Skál miðstærð: Hvít
-
7.990kr.5.593kr. - Setja í körfu
-
- 30%
- Stonemade
- Stór diskur: Grár
-
9.490kr.6.643kr. - Setja í körfu
-
- 30%
- Stonemade
- Stór diskur: Hvítur
-
9.490kr.6.643kr. - Setja í körfu
-
- 30%
- Stonemade
- Skál miðstærð: Grá
-
7.990kr.5.593kr. - Setja í körfu